Hestar / Icelandic Horses / Das Islandpferd
Forlagið hefur gefið út ljósmyndabókina „Hestar“ eftir ljósmyndarann þekkta Sigurgeir Sigurjónsson. Um er að ræða einstaklega fallega og góða bók fulla af myndum af íslenska hestinum bæði í sínu náttúrulega umhverfi sem og undir knöpum úti í náttúrunni eða inni á keppnisvellinum.
Sigurgeir hefur um langan tíma verið einn alfærasti hestaljósmyndari Íslands og eru til eftir hann margar myndir sem l0öngu eru orðnar klassískar, svo oft sem þær hafa verið notaðar og birtar þegar lyfta á ímynd hins íslenska gæðings.
Í bókinni skrifar Kristján B. Jónassoninngang, skemmtilegan úrdrátt úr sögu íslenska hestsins, einkar vel skrifaður skemmtilegur og fróðlegur texti. Kristján skrifar einnig alla myndatexta.
Bókin Hestar er einstaklega glæsileg 160 blaðsíðna ljósmyndabók hlaðin myndum af hestinum við allar hugsanlegar aðstæður, vetur, sumar, vor og haust.
Höfundur: Sigurgeir Sigurjónsson
_________
Icelandic horses is a particularly glamourous 160-page book of photographs by Sigurgeir Sigurjónsson that proudly displays beautiful colour photos of the Icelandic horse. The book is published in Icelandic, English and German. The pictures are both of herds and individual horses, while superb photos of Icelandic competition horses can also be found. The introduction to the book is written by Kristján B. Jónasson, who also wrote the captions.
Icelandic horses is a unique book of photographs that shows the Icelandic horse in both the competition arena and Icelandic nature, in winter, summer, spring and autumn.
Author: Sigurgeir Sigurjónsson
_________
Hestar er einstaklega glæsileg 160 blaðsíðna ljósmyndabók eftir Sigurgeir Sigurjónsson en hana prýða fallegar litmyndir af íslenska hestinum. Bókin kemur út á íslensku, ensku og þýsku. Myndirnar eru bæði af stóðum og stökum hestum en í henni er einnig að finna myndir af íslenskum keppnishestum. Inngang að bókinni skrifar Kristján B. Jónasson en hann gerir jafnframt myndatextana.
Hestar er einstök ljósmyndabók sem sýnir íslenska hestinn bæði á keppnisvelli og í íslenskri náttúru, vetur, sumar, vor og haust.
Autor: Sigurgeir Sigurjónsson

